Ég heiti Hróar Björnsson og er 32 ára. Ég er í sambúð með Berglindi Þorbergsdóttur og við eigum 3 börn. Aþena (17) Venus(5) og Atlas (2). Ég starfa sem rekstrarstjóri hjá Línuborun og Ofnasmiðju Reykjavíkur. Einnig er ég í Háskólanum í Reykjavík og legg stund á viðskiptafræði.
Ég kynntist Lifewave í lok ferbrúar 2009 og þessi kynni hafa aukið lífsgæði mín umtalsvert. Í mörg ár hef ég glímt við þráláta verki í baki og hálsi eftir bílslys auk þess sem ég er með vefja-og slitgigt. Ég fór 2-3x í viku í sjúkraþjálfun auk þess sem ég leitaði aðstoðar hjá hnykkjara 1-2x í viku til þess að halda mér gangandi. Auk þess þurfti ég að nota verkjalyf með. Kostnaður sem þessu fylgdi var töluverður en nauðsynlegur til þess að ég gæti sinnt mínum daglegu störfum. Eftir að ég fór að nota vörurnar reglulega er ég allt annar maður, verkir hafa stór minnkað, ég sef betur, ferðum mínum til sérfræðinga hefur fækkað til muna og verkjalyf heyra nánast sögunni til.
Mitt markmið er koma Lifewave vörum á þann stall sem þær eiga skilið. Ég tek viðskipta tækifærinu frá Lifewave af fullri alvöru. Ég ætla mér að ná langt í þeim og lít á þau sem langtíma viðskipti.
Bestu kveðjur,
Hróar Björnsson
ID 668342